miðvikudagur, júlí 26, 2006

jæja....

...sneiðmyndatakan sýndi ekkert. Ehemmm, það er að segja ekkert óvenjulegt, það sást auðvitað heili og svoleiðis dót ;) Læknirinn sagði að svimaköstin væri afleiðing af ofþreytu og spennu. Ég er nú með doktorsgráðu í stressi svo að það kemur ekki á óvart. Hann sagði að ég þyrfti að slappa af (yeahh right!) og hvíla mig... Það verður challenge. Ég gat ekki einu sinni slappað af á meðan ég var ólétt. En jæja, ég hef víst ekkert val.
Svo var blóðprufan líka fín, ég virðist vera að fá nóg hormón úr þessum pillum. Þannig að ég er bara í ágætis málum í bili :)

kveðja,
Eva

4 Comments:

At 26 júlí, 2006 22:34, Blogger Softone said...

Ja hérna hér segi ég nú bara, get ekki að því gert en ég skellti nokkrum sinnum upp úr við að lesa síðustu 5 færslur hjá þér eða svo :) ekkert illa meint samt! En þetta með skjaldkirtilinn er víst ekkert svo óalgengt, ein í vinnunni hjá mér er líka með sinn kirtil í gjörgæslu og sagði mér að allt að 5% kvenna hrjáist af þessu eftir fyrstu óléttu. En enívei, mig langar til að við förum að fara að hittast, starta matarklúbbnum okkar :)

Baráttukveðjur,
Gréta

 
At 28 júlí, 2006 00:01, Blogger Eva said...

Hey já, var einmitt búin að setja það inn á hinn never ending ToDo lista. Það verður sko næst á dagskrá :)

 
At 19 ágúst, 2006 13:56, Anonymous Kristbjörg said...

flott að heyra að heilsan er að komast í lag:) Kveðja Kristbjörg og fjölskylda;)

 
At 14 september, 2006 20:04, Anonymous Nafnlaus said...

Eins gott að þeir fundu heilann!!! En að öllu gríni slepptu þá er ég gvuðslifandi fegin að ekkert fannst. Það er miklu auðveldara að meðhöndla stress og þreytu en einhverja skemmd eða eitthvað þaðan af verra þarna í toppstykkinu.

Nú verður þú einfaldlega að slappa af elskan mín, þú keyrir þig annars bara út!

Finndu þér hobbý, eitthvað sem gefur sálinni líf á ný (eins og ég með sellóið-ótrúlegt hvað það nærir sálina) þú gætir þess vegna farið á keramiknámskeið, teiknikúrs, jóga eða hvað það getur verið, fáðu þinn tíma og þá verðuru endurnærð og getur sinnt vinnu, heimili og litlu yndislegu fjölskyldu þinni betur og tala ekki um sjálfa þig og þeim sem standa þér næst!
Það er allt í lægi að vera pínu eigingjörn á sjálfan sig!

Vona innilega að allt gangi vel elskan mín!

Þín SB

 

Sendu inn athugasemd

<< Home

þú ert gestur númer