Niðurstöðurnar úr blóðprufunni
Þá er bilanagreiningin tilbúin :) Ég fékk niðurstöðurnar úr blóðprufunni í morgun og ég er semsagt með vanvirkan skjaldkirtil. Það er ástæðan fyrir ÖLLU sem hefur verið að hrjá mig. Þunglyndið, sviminn, þreytan og líka vöðva- og sinaverkirnir. Hef svosem ekkert verið að kvarta undan því, enda búin að kvarta nóg, en ég er búin að vera að drepast í bakinu og úlnliðnum og reyndar bara í öllum skrokknum. Ég tengdi það bara við það að ég er að halda svo mikið á Rebekku, eins og maður gerir svo gjarnan, þ.e finna lógískar skýringar á öllum vandamálum. Svo var þetta bara allt skjaldkirtlinum að kenna. Skjaldkirtillinn framleiðir ákveðin hormón og hjá mér er framleiðslan of lítil þannig að ég þarf að taka þessi hormóm inn í töfluformi. Ástæðan er líklega meðgangan, en það getur truflað þennan blessaða kirtil eitthvað. Venjulega gengur það til baka en hjá mér hefur hann alltaf verið eitthvað slappur greyið og meðgangan hefur bara alveg gert útaf við hann. Það er rosalega gott að vera loksins komin með skýringu á þessu, ömurlegt að vera eitthvað skrýtin og enginn veit neitt. En svo vildi læknirinn senda mig í heilalínurit og sneiðmyndatöku því henni fannst þessi störu- og meðvitundarleysisköst vera eitthvað ótengt skjaldkirtlinum. Frekar eins og flog. Þannig að ég er ekki komin með clean bill of health ennþá, en það skýrist vonandi fljótlega. Allavega, vildi bara láta vita að ég er í góðu lagi og fæ fljótlega bót minna meina. Fer í apótekið á eftir að sækja pillurnar og svo í heilaskoðun þegar læknirinn er búinn að panta tíma. Það er víst eins gott að hafa toppstykkið í lagi ;)kveðja,
Eva


4 Comments:
Frábært að þeir komust að hvað var að...vonandi kemur allt vel út úr línuritinu og myndatökunni...mundu bara að brosa!! ;)
Kv. Margrét
Já, brosa skiptir öllu í svona myndatöku ;)
Gott að komin er skýring á flestu og ég vona að restin komi vel út.
kv. Súsanna nóvgella (ehe)
Gott að fá ástæðuna fyrir þessu, ekkert meira óþolandi en að líða furðulega, fara til læknis og þeir segja að ekkert sé að manni! Vona bara að hin skoðunin komi jákvætt út. Láttu þér bara líða vel og skilaðu kveðju til brósa og litlu krúsu frá okkur Gulla:)
Bestu kveðjur frá Danmörku,
Kristbjörg og Gulli.
erfitt að standa í þessu en gott þó að ástæðan fannst og það er eitthvað sem má laga.
Vonandi koma allar myndatökurnar vel út.
kv guðný
Sendu inn athugasemd
<< Home