Við erum flutt :)
Jæja þá erum við flutt. Reyndar fyrir viku síðan en við vorum útilokuð frá umheiminum þangað til á föstudaginn en þá var síminn og netið tengt hjá okkur :) Þetta gekk mjög vel. Rebekka endaði í pössun hjá ömmu sinni og stóð sig eins og hetja. Við vorum svakalega bjartsýn og ætluðum að hafa hana með okkur í stússinu, en á laugardeginum vorum við ekki búin að pakka nema helmingnum því við vorum svo lengi að mála og pabbi hans Steinþórs og bróðir hans komu til að hjálpa okkur að flytja. Ég stressaðist svo svakalega upp að ég snerist bara í kringum sjálfa mig. Mamma kom og var með Rebekku á meðan ég henti fötum í poka og restinni af dótinu okkar í kassa. Svo var hellingur af smádóti eftir sem ég hélt að við yrðum enga stund að henda í bílinn okkar og við fórum bara heim í Þrastarásinn um kvöldið. Svo í hádeginu á sunnudeginum fórum við aftur uppeftir til að þrífa og taka síðustu hlutina, en það endaði með því að Rebekka fór til mömmu um 17 leytið og við vorum sveitt að þrífa og pakka "síðustu" hlutunum til rúmlega 23, sem reyndist vera alveg hellingur. Reyndar var Steinþór aðallega í því að setja gólflista á svefnherbergisgólfið sem við áttum alltaf eftir að gera þannig að ég var ein í að þrífa og pakka. Þegar við komum að sækja Rebekku hafði hún ekkert getað sofnað og var búin að vaka í 9 tíma. Hún var gjörsamlega stjörf af þreytu greyið.Við erum svo bara búin að vera að koma okkur fyrir í rólegheitum og það á eftir að taka tímann sinn því við náðum bara að mála stofuna, ganginn og hjónaherbergið áður en við fluttum. Eldhúsið var málað núna um helgina og tölvuherbergið verður líklega tekið næst. Þangað til verður ekki hægt að nota það neitt að ráði því við nennum ekki að koma öllu fyrir þar til að rífa svo út aftur þegar við málum.
Okkur líður rosalega vel hérna og hverfið er yndislegt. Hrikalega sætt allt saman. Við fórum í göngutúr á kosningadaginn og það voru allir eitthvað að dúlla sér í bílskúrnum eða í garðinum að planta trjám, og börnin voru að leika sér. Þvílíkt krúttlegt. Og fullt af fólki í göngutúr með vagna, greinilega algjört barnahverfi.
Annars er það að frétta af mér að ég hef verið að fá svimaköst undanfarið og líst alls ekki á blikuna. Þetta kemur í allskonar útgáfum, bæði hefur mig svimað og ég hálfpartinn dottið út í sekúndubrot. Ég fékk líka suð fyrir hægra eyrað og heyrnin minnkaði í smástund. Svo um daginn varð ég alveg stjörf og sjónsviðið minnkaði. Ég fór til læknis á föstudaginn og fer í blóðprufu í fyrramálið. Læknirinn lét mig gera jafnvægisæfingar og komst að því að ég er með skert jafnvægisskyn hægra megin. Ég veit ekki hvort það er orsök eða afleiðing af svimanum og því öllu en það er víst langur listi yfir það sem gæti mögulega verið að og margt af því er mjög saklaust og auðvelt að laga svo að ég ætla ekkert að ímynda mér neitt fyrr en ég fæ að vita úr blóðprufunni. En þetta er mjög óþægilegt. Ég er alveg hress og finn ekkert fyrir þessu, svo bara allt í einu svimar mig. Þetta hefur ekki gerst mjög oft, kannski 4-5 sinnum síðustu 2 mánuði en mér finnst þetta vera að aukast núna. Suðið og sjónsviðsminnkunin gerðust eftir að við fluttum, þ.e. í síðustu viku. Sjálfsagt er þetta þreytunni að kenna og örugglega líka stressinu í mér. Ég er búin að naga neglurnar í allt kvöld og það geri ég aldrei nema þegar ég er stressuð. Svo er það líka nógu stressandi að vita ekki hvað er að. Æ, þetta skýrist á endanum.
kveðja,
Eva ringlaða ;)


2 Comments:
Til hamingju með flutninginn...vonandi kemur allt flott út úr blóðprufunni, notaðu bara tímann þangað til til að slappa af og ekkert vera að stressa þig á tiltekt eða að taka upp úr kössum...það kemur allt saman.
Kv. Margrét nóvkella...
Gaman að heyra að flutningurinn hafi gengið vel. Kannast vel við þetta með að eiga "bara smá" eftir. Þegar við Gulli fluttum úr Hegranesinu vorum við til klukkan sex um morguninn að klára þetta "smá". Verður gaman að sjá myndir af íbúðinni eftir að þið eruð búin að koma ykkur fyrir.
Ekki gott að heyra með heilsuna en það er bara að bíða og sjá, borgar sig ekkert að stressa sig of mikið. Búið að vera mikið um að vera hjá ykkur undanfarið þannig að þetta gæti bara verið uppsöfnuð þreyta. Reyndu bara að taka því rólega næstu daga þó ég viti að það er erfitt að halda aftur af sér þegar maður er nýfluttur. En vonast til að hitta ykkur á skypinu fljótlega.
Knús og kossar frá Danmörku,
Kristbjörg.
Sendu inn athugasemd
<< Home