föstudagur, maí 12, 2006

Að versla eður ei

Díses, hvað maður getur pirrast yfir hlutum sem maður tók ekki einu sinni eftir BB (before baby ;) ) Ég skrapp í Bónus Iðufelli í morgun með Rebekku í vagninum. Þetta er nú enginn tvíburavagn, bara svona nettur kerruvagn. En það er bara ekki gert ráð fyrir neinu á hjólum þarna (NB þá eru stærri búðirnar kannski aðeins rúmbetri). Í mjólkurkælinum var bretti af einhverju "$%#%#$% drasli nánast í miðjum gangveginum. Gangandi gátu smeygt sér léttilega framhjá, en ekki ég. Ég þurfti að bakka vagninum öfugum út aftur, með innkaupakörfuna í annari og hafði þess vegna bara eina hendi til að stýra. Svo stendur fólk eins og álkur þegar maður er að rembast eins og rjúpan við staurinn að reyna að mjaka vagninum í þá átt sem maður ætlar í. Það er hvorki verið að hjálpa til NÉ FÆRA SIG FRÁ! Að þeirra mati er ÉG fyrir. Alveg ótrúlegt! Þegar ég var loksins búin að koma vagninum fyrir og ætlaði að teygja mig í mjólkina kom einhver kall og ýtti við vagninum, af því að HANN þurfti að komast í sama mjólkurpott og ég.

Ég hef farið nokkrum sinnum í Bónus Hólagarði og þar er sama sagan. Það er kannski örlítið meira pláss þar, svona rétt nóg til að hugsa næsta skref, en fólkið er ekkert skárra, hvorki afgreiðslufólkið né kúnnarnir. Það eru allir að hugsa um sitt eigið rassgat og pæla ekkert í öðrum. Ég gæti svosem tjáð mig meira um þetta á staðnum og beðið fólk um að færa sig, en ég er kannski ekki sú allra málglaðasta við ókunnuga auk þess sem kæri mig ekki um að ryðjast eins og ísbrjótur um alla búð. En kommon, sumir horfa nú bara í gegnum mann eins og maður sé ekki á staðnum.

Svo hefði maður nú haldið að í eins fínni og dýrri búð og 11-11, þá væri spáð í svona "óþarfa lúxus" eins og að hafa gangana extra breiða og nóg pláss, en nei! Þeir eru bara mjórri ef eitthvað er. Hvað er að fólki? Eru þessar búðir ekki með einhverskonar sérfræðinga á himinháum launum sem pæla í svona hlutum. Alveg er vöruverðið nógu hátt til að réttlæta svoleiðis "bruðl".

Úff, ég bara varð að pústa aðeins. Þetta getur verið svoooo pirrandi, en um leið minnist ég þess að ég var oft bara í eigin heimi þegar ég var að versla hérna áður fyrr. Oft var ég líka fyrir öðrum þar sem ég stóð í þungum þönkum og starði á hillurnar.
Ég pældi heldur auðvitað aldrei í því að það væri eitthvað mál að drösla svona vagni út um allt áður en ég þurfti að standa í því sjálf. Hvað gera tvíburamæður eiginlega? Það er ekki séns að koma tvíburavagni inn í þessar búðir. Þær verða annaðhvort bara að bíða þangað til þær komast einar að versla, eða sleppa því að versla takk fyrir.

kveðja,
Eva rjúpa

1 Comments:

At 12 maí, 2006 16:22, Anonymous Nafnlaus said...

Oh, hvað ég skil þig. Það er bara staðreynd að það er mjög pirrandi og streituvaldandi að versla í Bónus, þá sérstaklega vegna hinna viðskiptavinanna og plássleysis líka. Stundum hef ég séð konur vera einar með lítil börn að gera stórinnkaup (fyrir vikuna eða helgina eða e-ð) og ég vorkenni þeim alltaf jafnmikið, ég á erfitt þegar ég með stóra tösku! Það eru líka allir svo stressaðir og að flýta sér svo mikið og um leið og maður er t.d. búin að borga við kassann þá er maður bara orðin fyrir. Ég kvíði því bara að þurfa að fara að versla fyrir heimilið sjálf, ómægod! nú sef ég ekki í tvo daga fyrir stressi...

Kv. Kolla

 

Sendu inn athugasemd

<< Home

þú ert gestur númer