föstudagur, maí 05, 2006

Stelpur og strákar

Ég var að horfa á eldri þætti af Fyrstu skrefin á netinu í gær og sá þátt sem var sýndur 19.apríl. Mjög þægilegt fyrir mig þar sem þátturinn er alltaf sýndur í kringum háttatímann hjá Rebekku og ég missi oft af honum. En þar var semsagt verið að fjalla um stráka og stelpur og muninn á þeim. Strákar voru almennt taldir sjálfstæðari, frumkvæðari, sterkari, hraðari og ákveðnari. En stelpur eru mýkri, umburðalyndari, blíðari, þolinmóðari, samvinnufúsari, nærgætnari og hafa meiri samkennd. Það var viðtal við konur úr Hjallastefnunni sem reka kynjaskipta leikskóla og þær töluðu um að kynin þyrftu þjálfun í eiginleikum hins kynsins, þannig að stelpur æfðu sig í sjálfsstyrkingu, að hafa kjark og þor og frumkvæði, og strákarnir æfðu sig í að vera sveigjanlegir, umhyggjusamir, mjúkir og umburðalyndir.

Fyrst fannst mér eins og það væri verið að gera lítið úr þessum mun á kynjunum og segja að það væri raunverulega enginn munur og að það ætti ekki að vera neinn munur, samfélagið mótaði bara börnin þannig að stelpur yrðu allar á einhvern ákveðinn hátt og strákar á einhvern annan hátt og að það hefði mjög neikvæðar afleiðingar. Ég hafði á tilfinningunni að ef maður myndi koma fram við stelpu eins og strák, að þá yrði hún bara strákur, eins og það skipti engu máli hvers kyns barnið væri. Ég veit svosem ekki hvort það voru skilaboðin, en mér fannst þetta komið út í þvilíka öfga. Kynin eru ólík og það er bara ekkert að því. En ég er hins vegar alveg sammála því að stelpur þurfa að læra að vera sterkari og ákveðnari og strákar þurfa líka að læra að vera umburðalyndari og sveigjanlegri. En hvað með þessa stráka sem eru umburðalyndir og stelpurnar sem eru sterkar? Fá þau þá bara að æfa eiginleika hins kynsins sem þau hafa þegar? Mega þau ekki bara fá að vera eins og þau eru? Eru þau kannski sett með hinu kyninu af því að þau kunna þetta nú þegar?
Mér fannst eins og það væri verið að snúa þessu alveg við og í staðinn fyrir að aðgreina kynin eins og vonda samfélagið gerir, þá er þessum mun bara eytt með því að gera kynin alveg eins. Er það eitthvað skárra? Kannski væri hægt að sannfæra mig um að þetta sé rétta leiðin, auðvitað ýtir samfélagið undir þessar stereótýpur og Hjallastefnan er bara að vinda ofan af þeim einstrengingshátt með því að veita báðum kynjum sömu möguleikana og styrkja þau í því að tileinka sér kostina við báðar víddirnar. Þessari hugmyndafræði verður kannski ekki heldur gert nógu góð skil á svona stuttum tíma sem þátturinn hefur.

Hinsvegar var ég mjög sammála því þegar Margrét Pála sagði að maður ætti ekki að láta kynferði sitt stjórna vali sínu í lífinu. Maður ætti að æfa sig í lífinu á sínum eigin forsendum, velja sér hlutverk og verkefni eftir sínum eigin löngunum, ekki kyni. Það er mjög góður punktur. En kynferði manns er samt stór hluti af manni og hann ber að virða. Kynin hafa missterkar hliðar og það er sá munur sem gerði forfeðrum okkar kleyft að lifa af. Það geta ekki allir verið sterkir í öllu, þá skarar enginn framúr. En það verða allir að fá að prófa hvar styrkleiki þeirra liggur og æfa sig í þeim sem þeim finnst ábótavant.

Allavega hafa flestir þörf fyrir að skilgreina sig á einhvern hátt og það er augljós líffræðilegur munur á kynjunum svo að það er eðlilegt að nota þann mun í skilgreininguna sína. En auðvitað er það ekki eina breytan og allir eiga að fá sömu tækifæri hvort sem þeir eru skilgreindir sem strákar, stelpur, hommar, útlendingar eða eldri borgara.

Það er munur á kynjunum, en sá munur á ekki að fá að stjórna því hver lífsgæði okkar verða. Það finnst mér vera rétta viðhorfið, og kannski er það einmitt kjarninn í þessari stefnu. Að það skipti ekki máli hvort þú sért strákur eða stelpa, heldur einstaklingur sem átt allan rétt á sömu tækifærum og aðrir. En í aldanna rás hafa þessi kynjahlutverk okkar fest sig í sessi svo að það þarf svona drastískar aðferðir til að við hrökkvum uppúr þessari einstefnu.

Það er bara svo auðvelt að fara á annanhvorn endann á spýtunni og koma út sem öfgakenndur. Þessi gullni meðalvegur er vandrataður. Kannski finnst okkur líka að það sem við þekkjum ekki og er framandi, það hlýtur að vera rangt og óviðeigandi. Kannski vantar manni bara viðsýni til að skilja þetta til hlítar. Er Hjallastefnan ef til vill á undan sinni samtíð?

kveðja,
Eva

1 Comments:

At 08 maí, 2006 17:07, Anonymous Kristbjörg said...

Hef ekki kynnt mér Hjallastefnuna nóg til að tjá mig um hana en svona sem innlegg í umræðuna þá las ég um rannsókn í sálfræði um mismunandi framkomu fullorðinna við börn eftir kynjum. Lítið barn var klætt í stelpuföt og þá brást fólkið við með því að sýna "henni" dúkkur og leika við "hana" í dúkkuleik. Síðan var sama barn klætt í strákaföt og brást þá fólk við með því að sýna "honum" bíla og þess háttar.

Sá líka einu sinni rosa flott mynd sem segir margt. Á myndinn voru strákur og stelpa sem höfðu klætt sig í konuföt. Mamman stóð yfir stelpunni og hældi henni og pabbinn stóð yfir stráknum að skamma hann.

Þannig að uppeldið setur greininlega strik í reikninginn...

 

Sendu inn athugasemd

<< Home

þú ert gestur númer