sunnudagur, maí 14, 2006

Íbúð í álögum

Ég var að hugsa um daginn hvernig lífið hefur tekið óvæntar beygjur. Það rifjaðist upp fyrir mér dagurinn sem ég flutti hingað í Austurbergið fyrir tæpum 3 árum. Ég man eftir því að ég stóð alein og einmana innan um alla kassana sem ég átti eftir að taka upp úr. Á þeim tímapunkti var ég auðvitað í sárum og fannst eins og ég myndi aldrei verða hamingjusöm aftur. Ég hafði aldrei búið ein áður og var mjög lítil í mér. Svo tæpu ári seinna kynntist ég Steinþóri og fór að blómstra aftur. Eftir að litli sólargeislinn okkar fæddist hef ég bara ekki lengur orð yfir þær tilfinningar sem ég upplifi daglega. Mér finnst ég vera svo lánsöm og svo rík. Ég á yndislegan eiginmann og heilbrigða litla stelpu.

Það eru kannski álög á þessari íbúð, því að stelpan sem seldi mér hana flutti ein inn en þegar hún flutti út átti hún eiginmann og stjúpson. Ég vona að stelpan sem fær íbúðina okkar núna, njótu sömu gæfu og við og flytji út ríkari en hún var þegar hún flutti inn.

Annars gengur flutnings-undirbúningurinn ágætlega. Við erum búin að pakka niður í nokkra kassa og stafla þeim upp út í horni. Svo fórum við í Byko áðan og keyptum eitt og annað fyrir málningarvinnuna. Við ákváðum að mála bara sjálf, það er ódýrara auk þess sem við þurfum ekki að mála eins mikið og við bjuggumst við. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf þannig að það þarf bara að mála loftið, og það má gerast eftir að við erum flutt. Svo mun Rebekka ekki byrja að nota herbergið sitt strax svo að það má bíða líka. Tölvuherbergið má líka sitja á hakanum ef því er að skipta, en vonandi náum við að mála það áður en við flytjum. Svo eru þvottahúsið og geymslan þannig herbergi sem ekki er þörf á að hafa endilega nýmáluð, en við sjáum til. Eftir eru hjónaherbergið, gangurinn, stofan og örlítið af eldhúsinu þar sem innréttinginn og flísarnar á milli efri og neðri skápa þekja langmest af því. Við fáum líka hjálp frá dyggum ættingjum svo að við erum bara svakalega bjartsýn og jákvæð. Og hlökkum alveg svaaaaaakalega til að komast í Hafnarfjörðinn.

kveðja,
Eva

7 Comments:

At 16 maí, 2006 16:04, Blogger Lóa said...

Eva mín
Mikið er gott að heyra hversu ánægð þú ert, það er bara alveg meiriháttar. Megi hamingjan og ástin halda áfram að blómstra í Hafnarfirðinum

Þín Lóa

 
At 16 maí, 2006 20:27, Anonymous Kristbjörg said...

Vildi bara óska ykkur góðs gengis í málningarvinnunni. Hlakka svo mikið til að koma í heimsókn í nýju íbúðina í haust;)

kveðja Kristbjörg og co

 
At 17 maí, 2006 11:56, Blogger G-Doc said...

Alveg meiriháttar. Hlakka til að sjá ykkur.

 
At 19 maí, 2006 14:43, Blogger Dusdus said...

Hei Eva, þú verður að gefa mér upp hvaða íbúð þetta er...þarf að flytja í hana þegar ég flyt heim ;)

En frábært hvað er bjart yfir þér :D

 
At 19 maí, 2006 14:53, Blogger Eva said...

Hver er dusdus????

 
At 19 maí, 2006 16:51, Blogger Dusdus said...

Æ úps sorrý - gleymdi að kvitta ;)
kv. Súsanna Nóvbumba ;) tíhí

 
At 24 maí, 2006 14:08, Anonymous Margrét said...

Það eru sko verri álög til en þetta!! Ætti að gera íbúðina söluvænni... ;)

Kv. Margrét Nóvbumba

 

Sendu inn athugasemd

<< Home

þú ert gestur númer