Húsamál - framhald
Öss öss, komin vika og ekkert að gerast hérna :) Við skrifuðum undir kaupsamningana í vikunni. Þrastarásinn á mánudaginn og Austurbergið í dag miðvikudag. Svo eigum við bara eftir að mæta tvisvar í viðbót til að skrifa undir afsölin. Pheeew, nóg að gera í þessum bissness. En við getum andað örlítið léttar núna, það er búið að skrifa undir og peningar komnir og farnir. Vonandi eigum við svo nógan afgang fyrir húsgögnum, íbúðin verður víst svolítið tómleg til að byrja með.En að öðrum barnatengdum málum... Við Rebekka fórum í mömmujóga í dag. Hún er farin að endast allan tímann án þess að þurfa að drekka. Þetta var orðið vandamál því hún var orðin svöng áður en slökunin hófst og ég var alla slökunina í óþægilegri stellingu að gefa henni og slakaði vægast sagt ekki mikið á. Það er miklu betra að liggja í rúmi heldur en á gólfinu. Svo var ekki lengur hægt að gefa Rebekku sitjandi því það gekk svo mikið á hjá henni að henni svelgdist á í öðrum hverjum sopa. Það gekk víst betur liggjandi því þá flæddi mjólkin hægar. En núna er þetta allt annað, hún liggur bara og leikur sér og svo í slökuninni sitjum við kannski saman og syngjum eða hún heldur áfram að leika sér og ég fæ að liggja eins og skata á gólfinu. Svo drekkur hún bara þegar við komum heim.
Svo er hún líka farin að sofa milli 20 og 21 á kvöldin og ekkert vesen. Vaknar svo kl. 00 og 04 til að drekka. Það á síðan eftir að lengjast þegar hún fer að fá graut, þá gæti hún sofið kannski í 6 tíma í einu.
Æ litla snúllan mín er að verða svo stór, verður 5 mánaða á morgun. Fær graut eftir ca.mánuð og það lítur út fyrir að hún sé að fá fyrstu tönnina sína í neðri góminn.
Ég er samt ekkert að verða stór í mömmuhlutverkinu, allavega er ég voðalega lítil stundum. Til dæmis í dag í jóga, þá bauðst kennarinn til að halda á Rebekku svo ég þyrfti ekki að sitja með hana, heldur gæti bara legið á gólfinu og slakað á. Jú jú það var auðvitað vel þegið, en samt gat ég ekki slakað alveg á og var alltaf að kíkja á hana til að tékka. Ég bara get ekki haft augun af Rebekku. Kannski einum of, en ég ræð ekkert við þetta. Hvernig ætli þetta verði þegar Rebekka fer til dagmömmu...?
kveðja,
Eva litla mamma


3 Comments:
Hvenær flyturðu Eva mín?
Og þetta er nú held ég algengt með ykkur mömmurnar.Hlytur að venjast
Bíddu bíddu er bara allt steindautt hérna... hveurslags eiginlega er þetta:)
ertu búin að skoða saumó nýlega?
Bið að heilsa litlu familíunni, hlakka til að lesa meira eftir þig!!!!!
SB
Við fáum afhent 15.maí svo að flutningar ættu að hefjast fljótlega eftir það.
Sorrý Sigrún mín, litla krúttið mitt leyfir mér ekki að vera það lengi í tölvunni að ég nái að skrifa eitthvað af viti... :( Svo er ég líka búin að standa á haus í skattskilum og vask-skilum, svo að ég er löglega afsökuð ;)
kv.Eva bókarabéus
Sendu inn athugasemd
<< Home