Hafnarfjörður HERE WE COME!
Við verðum bráðum stoltir húseigendur í Hafnarfirðinum. Fórum á fimmtudaginn að skoða rosalega flotta íbúð og ákváðum í framhaldinu að gera tilboð, sem var samþykkt á föstudaginn :) Semsagt, 101 fm íbúð í Þrastarási (lengst upp á heiði, í Áslandinu fyrir ofan Vellina. Kort nr.12 reitur A-4 í símaskránni c",) ) með 3 svefnherbergjum, þvottahúsi og geymslu, eldhúsi með amerískum ísskáp og uppþvottavél sem fylgja með, parket og hurðir úr mahogny og skáparnir líka.... og bara allt sem okkur dreymdi um. Það er sérinngangur þótt þetta sé fjölbýlishús og ENGIN SAMEIGN!! JIBÍÍÍÍÍÍÍÍ!!!!Rebekka fær sérherbergi, þótt við leyfum henni nú að sofa hjá okkur svona fyrst. Við fáum herbergi með plássi fyrir rúmið okkar og svo er lítið gluggalaust herbergi sem verður notað sem tölvu-/gestaherbergi.
Við fáum afhent í maí. Hérna eru myndir af íbúðinni.
Við þurfum því að setja litlu holuna okkar á sölu. Fasteignasalinn kemur á mánudaginn að taka myndir svo að við erum búin að standa á haus í skúringum og málningarvinnu alla helgina. Fyndið hvað maður lætur endurbæturnar alltaf sitja á hakanum. Svo drífur maður í þeim þegar maður selur og fær ekki að njóta þeirra neitt. Jæja, við fáum bara að njóta 101 fm af nýjum veggjum og nýjum gólfum í staðinn.
kveðja,
Eva soon to be Hafnfirðingur


4 Comments:
Vá, til hamingju með þessa flottu íbúð, þið fáið algjört víðáttubrjálæði við þessa skiptingu :)
Gréta.
Takk :) Já vá við eigum ekki einu sinni nógu mikið af húsgögnum til að fylla íbúðina. Þetta verður soldið mínimalískt til að byrja með ;) Nóg pláss til að hoppa og hlaupa um.
vá, frábært.
til hamingju með þetta, ekkert smá flott íbúð
Kolbrún
hæhæ :D þetta er frábært að heyra með íbúðina
já það gengur sko allt ykkúr í haginn núna !!!
en vildi bara láta vita að ég fylgist nú vel með hérna :D
kv. Ingibjörg :D
Sendu inn athugasemd
<< Home