miðvikudagur, mars 22, 2006

Bless bless Breiðholt

Smá öpdeit á fasteignaviðskiptunum, en við seldum Austurbergið í gær :) Ég held að þetta sé bara einhverskonar met. Við sáum Þrastarásinn á mbl.is á miðvikudaginn, skoðuðum á fimmtudaginn og gerðum svo tilboð á föstudaginn. Þann sama dag settum við okkar íbúð á sölu, óþarfi að versla við margar fasteignasölur í einu. Svo um helgina máluðum við og tókum til fyrir myndatökuna, en fasteignasalinn hefði ekkert þurft að taka myndir því á mánudaginn kom stelpa að skoða hjá okkur og gerði tilboð sem við samþykktum á þriðjudag. Fasteignasalinn kom samt til öryggis á mánudaginn, ef tilboðið yrði ekki samþykkt. Við keyptum því og seldum á innan við viku. Geri aðrir betur! ;)
Við erum auðvitað í skýjunum með þetta allt saman og miðað við hvernig undanfarinn mánuður er búinn að vera þá býst ég ekki við að við komum niður fyrr en bara á næsta ári :)

kveðja,
Eva

4 Comments:

At 23 mars, 2006 13:26, Blogger SBS said...

Ótrúlegt alveg hreint, eins og ég segi þá hljóta allir hlutir að gerast á ljóshraða á þínu heimili:)
Ég vona að þið hafið fengið gott verð fyrir íbúðina ykkar og auðvitað þá nýju á spottprís;)
Gaman að allt sé svona glimrandi hja ykkur elskurnar, hlakka til að koma í heimsókn!!

 
At 23 mars, 2006 18:20, Blogger G-Doc said...

Vá Eva
Þú skalt bara aldrei koma niður úr skýjunum.
Þetta er rosalegt

 
At 29 mars, 2006 14:27, Anonymous Nafnlaus said...

Bara ein spurning? Hvernær flytjið þið svo?

kv. Lóa

 
At 29 mars, 2006 21:42, Blogger Eva said...

Við flytjum uppúr miðjum maí. Fáum afhent 15. og þurfum að afhenda okkar 22.

 

Sendu inn athugasemd

<< Home

þú ert gestur númer