Erum komin með síðu á barnaland.is. Smellið
hér, eða leitið að nafninu stúlka Steinþórsdóttir. Það þarf leyniorð til að komast inn á hana, og vegna þess hve bloggið er opið vil ég ekki setja leyniorðið hérna inn og verð því að biðja ykkur um að óska eftir aðgangi, það er form til að fylla út þegar þið reynið að komast inn á síðuna.
kveðja,
Eva
Myndir og nýjustu fréttir
Ég er búin að setja inn nokkrar myndir af okkur, bæði á spítalanum og svo hérna heima. Búin að ætla að gera það í sirka víku, en svona eins og Gréta vinkona sagði þá gerast góðir hlutir mjööööög hægt ;) En allavega, enjoy.
Við erum að spá í að fá okkur áskrift á barnaland.is eða barnanet.is, erum ekki alveg viss hver munurinn er. Comment vel þegin frá þeim sem hafa vit á þessu. En það er svolítið þjálla að henda inn myndum á þær síður heldur en að púsla þessu saman í notepad, svo er vefsíðuplássið mitt líka að verða búið :(
En af okkur er allt fínt að frétta, litla daman svaf í fyrsta sinn í rúminu sínu í dag. Við höfum bara haft hana upp í hjá okkur hingað til, en núna var kominn tími til að prufukeyra nýja fína rúmið. Það féll bara í góðan jarðveg. Þetta var reyndar tilraun nr.2, því að í gærnótt ætluðum við að láta hana sofa þar en mín vildi barasta ekki gúddera það. Fékk þessa svakalegu sogþörf að ég sá fram á að þurfa að standa við rúmið hennar með litla putta upp í henni alla nóttina. Við nefninlega viljum ekki láta hana fá snuð alveg strax, til að skemma ekki sogtæknina hjá henni. Og svo fær hún líka útrás fyrir sogþörfina þegar hún sýgur brjóstið, svo að þetta hefur ekki verið neitt svakalegt vandamál hingað til. Hún hefur samt tekið syrpur þar sem hún drekkur á hálftíma fresti í kannski 3 klukkutíma. En það er svosem bara fínt, þá drekkur hún allavega nóg. En við ákváðum að venja hana þá bara við rúmið að degi til, svo að þegar nóttin kæmi þá væri hún búin að sofa í því allan daginn og myndi líða betur um nóttina.
Já talandi um að drekka nóg, ég er búin að hafa þvílíkar áhyggjur af því að hún sé ekki að þyngjast nóg. Við vigtuðum hana um helgina og sáum okkur til mikillar skelfingar að hún var búin að léttast um 200 grömm síðan við komum heim af fæðingardeildinni (var 3040 gr. þá og orðin ca 2800 gr. skv.vigtinni okkar). Ég talaði við hjúkrunarfræðinginn frá heilsugæslunni og hún sagði mér að gefa henni oftar. Það var því háð mjólkur-maraþon og daman bara vakin af fegurðarblundinum á tveggja tíma fresti, punktligt! Svo kom hjúkkan daginn eftir til að vigta hana og skoða og þá var hún orðin 3400 gr, takk fyrir! Þá hafði vigtin okkar verið eitthvað vanstillt og mældi ekki rétt. Sem betur fer. Ltla prinsessan dafnar semsagt bara alveg eðlilega.
Jæja, mér heyrist hún vera farin að rumska. Hún tekur sér góðan tima í það að vakna. Teygir sig og geyspar svona fimm sinnum á milli þess sem hún dottar aftur, áður en hún opnar augun og heimtar mjólk. Hún er meiri nautnabelgur en ég :) og ég er ljón!
kveðja,
Eva
stúlka Steinþórsdóttir
Lítill engill kom í heiminn þann 30.október kl.10:18. Það var bjartur og fagur sunnudagsmorgunn og veðrið var svo friðsælt að það var eins og heimurinn héldi niðri í sér andanum meðan hún fæddist. Hún var 51 cm og 13,5 mörk. Fæðingin tók mjög stuttan tíma og hún var fædd 2 klst. eftir að við komum upp á fæðingardeild. Ég fékk enga deyfingu, enda enginn tími fyrir svoleiðis, en ég prófaði glaðloftið sem virkaði bara ágætlega. Ég var svakalega montin eftirá að hafa ekki fengið deyfingu og líka hvað jógaöndunin hjálpaði mér mikið í hríðunum.
Við vorum síðan í góðu yfirlæti á sængurkvennadeildinni næstu 4 daga, þar sem allir vildu allt fyrir mann gera. Ljósurnar þarna eru yndislegar, allar með tölu, og bara allt starfsfólkið. Þegar það voru vaktaskipti, þá komu þær inná stofurnar og kynntu sig og tóku statusinn hjá manni. Svo voru þær alltaf að kíkja inn öðru hvoru til að tékka á okkur og hvort okkur vanhagaði um eitthvað.
Við komum svo heim í gærmorgun og mikið var nú gott að koma heim. Það var svolítið einmanalegt á nóttunni að geta ekki haft Steinþór hjá sér, og hann saknaði okkar líka mikið. En hann nýtti heimsóknartímana til fulls og svo voru þetta bara nokkrir dagar, en í leiðinni mjög nauðsynlegur aðlögunartími fyrir okkur mæðgurnar því að það er svo mikilvægt að brjóstagjöfin sé farin að ganga vel áður en farið er heim.
Svo vildu þeir líka fylgjast með mér og blóðþrýstingnum því að það er víst ekkert grín að vera með meðgöngueitrun, getur jafnvel verið lífshættuleg.
Þegar við komum heim tók við hvíld og ný aðlögun, þar sem ég hef ekki ljósmóður í kallfæri hérna. En allt hefur gengið eins og í sögu. Mjólkin er að mestu leyti komin og litla rúsínan drekkur á 2 tíma fresti, á milli þess sefur hún.
Þið verðið að fyrirgefa okkur ef við höfum gleymt að láta einhvern vita eða ef við erum ekki ennþá búin að hringja. Við erum bæði búin að vera upptekin af nýjum hlutverkum og svo er ég hrikalega utan við mig og gleymin. Svo vildi ég líka koma öllum rútínum á hreint áður en ég færi að bjóða gestum heim. En bear with me, þetta er allt að koma :)
kveðja,
Eva