stúlka Steinþórsdóttir
Lítill engill kom í heiminn þann 30.október kl.10:18. Það var bjartur og fagur sunnudagsmorgunn og veðrið var svo friðsælt að það var eins og heimurinn héldi niðri í sér andanum meðan hún fæddist. Hún var 51 cm og 13,5 mörk. Fæðingin tók mjög stuttan tíma og hún var fædd 2 klst. eftir að við komum upp á fæðingardeild. Ég fékk enga deyfingu, enda enginn tími fyrir svoleiðis, en ég prófaði glaðloftið sem virkaði bara ágætlega. Ég var svakalega montin eftirá að hafa ekki fengið deyfingu og líka hvað jógaöndunin hjálpaði mér mikið í hríðunum.Við vorum síðan í góðu yfirlæti á sængurkvennadeildinni næstu 4 daga, þar sem allir vildu allt fyrir mann gera. Ljósurnar þarna eru yndislegar, allar með tölu, og bara allt starfsfólkið. Þegar það voru vaktaskipti, þá komu þær inná stofurnar og kynntu sig og tóku statusinn hjá manni. Svo voru þær alltaf að kíkja inn öðru hvoru til að tékka á okkur og hvort okkur vanhagaði um eitthvað.
Við komum svo heim í gærmorgun og mikið var nú gott að koma heim. Það var svolítið einmanalegt á nóttunni að geta ekki haft Steinþór hjá sér, og hann saknaði okkar líka mikið. En hann nýtti heimsóknartímana til fulls og svo voru þetta bara nokkrir dagar, en í leiðinni mjög nauðsynlegur aðlögunartími fyrir okkur mæðgurnar því að það er svo mikilvægt að brjóstagjöfin sé farin að ganga vel áður en farið er heim.
Svo vildu þeir líka fylgjast með mér og blóðþrýstingnum því að það er víst ekkert grín að vera með meðgöngueitrun, getur jafnvel verið lífshættuleg.
Þegar við komum heim tók við hvíld og ný aðlögun, þar sem ég hef ekki ljósmóður í kallfæri hérna. En allt hefur gengið eins og í sögu. Mjólkin er að mestu leyti komin og litla rúsínan drekkur á 2 tíma fresti, á milli þess sefur hún.
Þið verðið að fyrirgefa okkur ef við höfum gleymt að láta einhvern vita eða ef við erum ekki ennþá búin að hringja. Við erum bæði búin að vera upptekin af nýjum hlutverkum og svo er ég hrikalega utan við mig og gleymin. Svo vildi ég líka koma öllum rútínum á hreint áður en ég færi að bjóða gestum heim. En bear with me, þetta er allt að koma :)
kveðja,
Eva


4 Comments:
Awww, ótrúlega lítil og krúttleg! Hún minnir dáldið á Steinþór en er með lítinn krúttlegan nebba frá mömmu sinni :)
Bestu kveðjur,
Gréta og fjsk.
Va hvad hun er falleg Eva! eins og mamman
Hlakka rosalega til ad sja ykkur, kem heim 24
Gudny
Hæ hæ og til hamingju!! get ekki hætt að segja til hamingju enda ekki ástæða til:) Hún er ekkert smá sæt, mér finnst hún rosalega lík þér Eva.
Hlakka mikið til að sjá hana í desember, komum líklega þann 4.des til landsins þannig að þið megið búast við okkur gulla í heimsókn 5.des (þ.e. ef við verðum seint á ferðinni þann 4.des)
Sjáumst hress í desember:)
Hae elsku Evan min
Tad var aedi at heyra i ter, eg fekk heimtra vid tad. Hlakka til ad sja ykkur trju.
Gudny
Sendu inn athugasemd
<< Home