Myndir og nýjustu fréttir
Ég er búin að setja inn nokkrar myndir af okkur, bæði á spítalanum og svo hérna heima. Búin að ætla að gera það í sirka víku, en svona eins og Gréta vinkona sagði þá gerast góðir hlutir mjööööög hægt ;) En allavega, enjoy.Við erum að spá í að fá okkur áskrift á barnaland.is eða barnanet.is, erum ekki alveg viss hver munurinn er. Comment vel þegin frá þeim sem hafa vit á þessu. En það er svolítið þjálla að henda inn myndum á þær síður heldur en að púsla þessu saman í notepad, svo er vefsíðuplássið mitt líka að verða búið :(
En af okkur er allt fínt að frétta, litla daman svaf í fyrsta sinn í rúminu sínu í dag. Við höfum bara haft hana upp í hjá okkur hingað til, en núna var kominn tími til að prufukeyra nýja fína rúmið. Það féll bara í góðan jarðveg. Þetta var reyndar tilraun nr.2, því að í gærnótt ætluðum við að láta hana sofa þar en mín vildi barasta ekki gúddera það. Fékk þessa svakalegu sogþörf að ég sá fram á að þurfa að standa við rúmið hennar með litla putta upp í henni alla nóttina. Við nefninlega viljum ekki láta hana fá snuð alveg strax, til að skemma ekki sogtæknina hjá henni. Og svo fær hún líka útrás fyrir sogþörfina þegar hún sýgur brjóstið, svo að þetta hefur ekki verið neitt svakalegt vandamál hingað til. Hún hefur samt tekið syrpur þar sem hún drekkur á hálftíma fresti í kannski 3 klukkutíma. En það er svosem bara fínt, þá drekkur hún allavega nóg. En við ákváðum að venja hana þá bara við rúmið að degi til, svo að þegar nóttin kæmi þá væri hún búin að sofa í því allan daginn og myndi líða betur um nóttina.
Já talandi um að drekka nóg, ég er búin að hafa þvílíkar áhyggjur af því að hún sé ekki að þyngjast nóg. Við vigtuðum hana um helgina og sáum okkur til mikillar skelfingar að hún var búin að léttast um 200 grömm síðan við komum heim af fæðingardeildinni (var 3040 gr. þá og orðin ca 2800 gr. skv.vigtinni okkar). Ég talaði við hjúkrunarfræðinginn frá heilsugæslunni og hún sagði mér að gefa henni oftar. Það var því háð mjólkur-maraþon og daman bara vakin af fegurðarblundinum á tveggja tíma fresti, punktligt! Svo kom hjúkkan daginn eftir til að vigta hana og skoða og þá var hún orðin 3400 gr, takk fyrir! Þá hafði vigtin okkar verið eitthvað vanstillt og mældi ekki rétt. Sem betur fer. Ltla prinsessan dafnar semsagt bara alveg eðlilega.
Jæja, mér heyrist hún vera farin að rumska. Hún tekur sér góðan tima í það að vakna. Teygir sig og geyspar svona fimm sinnum á milli þess sem hún dottar aftur, áður en hún opnar augun og heimtar mjólk. Hún er meiri nautnabelgur en ég :) og ég er ljón!
kveðja,
Eva


1 Comments:
Ah, hún er algjört sæta-barn þessi litla dúlla, ekkert eitthvað súperkrumpuð heldur sér maður strax svip með henni og ykkur :) Hlakka til að sjá ykkur, vonandi fer að styttast í það.
Kveðja,
Gréta.
Sendu inn athugasemd
<< Home