Vont en það venst...
Í dag eru 4 vikur í 7.nóvember. Ég er miklu skárri í skapinu núna, en það gæti svosem breyst eins og veðrið. Kannski er þetta bara svona eins og í textanum hjá Súkkat "...vont en það venst..." hehe ein að reyna að vera bjartsýn. En mér líður samt betur núna heldur en í síðustu viku og það er auðvitað bara gott. Sef ekkert betur, en á móti kemur að ég má sofa út þannig að þetta jafnast allt saman. Við fórum til ljósu og það leit allt saman vel út, reyndar miklu betur en ég bjóst við. Blóðþrýstingurinn í fínu lagi og hjartslátturinn hjá barninu í toppformi. Og höfuðið er ennþá skorðað, greinilega mjög stundvíst barn á leiðinni... eða bara óþolinmótt. Vonandi kemur það samt ekkert óþarflega snemma. Ég sagði henni að ég væri orðin tuskulegri en ég ætti vana til og að þessi ólétta væri farin að segja til sín (hef hingað til ekki haft yfir neinu að kvarta þannig séð) og hún stakk upp á að ég færi til læknis og fengi vottorð um að ég hætti að vinna. Ég hafði satt að segja ekki hugsað út í það að nýta veikindaréttinn minn, en þegar maður pælir í því þá er hann einmitt nothæfur í því ástandi sem ég er í. Ég meina, ég er ekki rúmliggjandi með hita, en ég er heldur ekki 100% frísk. Og þegar starfsmaður sem hefur varla tekið nema 2 daga í veikindafrí síðustu 18 mánuði þá á hann alveg inni að taka því rólega þegar þannig stendur á. Svo að ég ætla að fara til læknis og fá vottorð og þá þarf ég ekki að hafa neinar áhyggjur af því að missa tekjur. Enda var það svosem ekkert issjú með þennan líka fína yfirmann. Hann var alveg sáttur við að ég kæmi með vottorð svo ég héldi laununum mínum þangað til fæðingarorlofssjóður tæki við. Alveg gull af manni!Það er svo sem ekkert mikið meira að frétta, erum búin að setja saman barnarúmið og koma því fyrir inni í herbergi. Það passaði miklu betur en við héldum og meira að segja hægt að hafa náttborð á milli rúmanna. Það er eiginlega alveg nauðsynlegt, til að geyma á lampa og barnapíugræjuna og það sem þarf að hafa við höndina. Eigum eftir að fá sæng en hún er á leiðinni. Svo er skiptiborðið í geymslunni og bíður eftir því að verða sett saman. Við ákváðum að halda í þetta litla pláss sem eftir er í svefnherberginu aðeins lengur, eða þangað til Steinþór fer í fæðingarorlof. Það verður um mánaðarmótin. Þá ætlum við að taka því rólega og hvíla okkur fram að fæðingunni (og setja saman skiptiborðið ;) ).
Svo erum við búin að fara í foreldrafræðslu síðustu 2 vikur, förum í síðasta skiptið núna á miðvikudaginn. Síðast fengum við að skoða Hreiðrið, það var rosalega gaman. Þá sáum við fæðingarstofurnar og allar græjurnar sem eru notaðar eins og glaðloftsgrímuna og nálastungunálarnar. Þetta gerði þetta ennþá raunverulegra, þótt það sé orðið mjög raunverulegt að það er að koma barn á heimilið.
Jæja, best að fara að sofa.
kveðja,
Eva


2 Comments:
Nice Blog. Check this out, you can get a free iPod
Hæ hæ! Hrikalega spennandi að fá að fylgjast svona náið með, maður er bara alveg að deyja úr spenningi....Gott að heyra að þið ætlið að fara að taka því rólega, líst vel á ykkur. Þið munið svo bara að láta mig vita þegar eitthvað gerist...gangi ykkur vel
Sendu inn athugasemd
<< Home