Nýr gír
Jæja, þá er ég formlega komin í fæðingarorlof. Fór í morgun upp í vinnu til að sækja dót úr tölvunni og kveðja strákana. Ég upplifði smá panik á leiðinni heim, fannst eins og ég væri að yfirgefa þá hjálpar- og umkomulausa. Svo minnti ég sjálfa mig á að ég er ekki ómissandi og að þeir geta þetta vel án mín (auk þess hafa þeir símann minn og meilið mitt og leyfi til að nota bæði óspart), allavega gekk þetta áður en ég byrjaði að vinna þarna svo að þetta ætti að reddast ;) Týpískt ég, að hafa áhyggjur af þessu, gæsamömmu-syndrome á háu stigi hehehe.Svo setti ég inn tvær myndir í Bumbuþróunina. Vá! búin með 90%. Enda ekki mikið eftir. Ætlaði að setja inn fleiri myndir en við erum bara ekki búin að taka neinar myndir í september svo að þessar tvær verða að duga. Ég er viss um að við verðum mun duglegri að taka myndir þegar litli kúlusparkarinn verður fyrir framan linsuna. Miklu skemmtilegra myndefni híhí.
Jæja, ég ætla að drífa mig á fundarskapanámskeið. Er komin í félag viðurkenndra bókara (úlala) og til að haldast í félaginu þarf maður að safna námskeiðspunktum. Fæ held ég 4,5 punkta fyrir þennan kúrs. Ég er svakalega spennt fyrir félagsstarfinu og ætla að nýta mér þennan félagsskap vel. Það er gott að hafa svona bakhjarl þegar maður er aleinn að bóka fyrir fólk út í bæ.
kveðja,
Eva (komin í húsmæðragírinn)


0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home