Allt í gang!
Jæja þá er komið að þessu. Vá hvað þetta virkaði fjarlægt bara í gærkvöldi. Núna er fæðingarferlið komið í gang og við fáum krílið okkar í hendurnar innan skamms.Til að gera langa sögu stutta (því ég á eiginlega að vera að hvíla mig ;) ) þá fór vatnið hjá mér klukkan fimm í dag og svo heppilega vildi til að ég var akkúrat upp á meðgöngudeild þegar það gerðist. Þurfti að vera þar í nótt vegna gruns um meðgöngueitrun. En allar prufur komu vel út svo að ég er ekki með þessa eitrun skv.ströngustu skilgreiningum, en samt sem áður á mörkunum.
Eftir að vatnið fór var ég sett í mónitior og allt leit vel út svo að ég mátti bara fara heim og hvíla mig fyrir átökin. Svo verður auðvitað fylgst vel með öllu hjá mér áfram, fer aftur uppeftir í fyrramálið í tékk ef hríðarnar verða ekki byrjaðar og þá kannski ýtt við þeim með lyfjum. En það er ekki líklegt því ég er að fá óreglulega samdrætti núna sem eru að harðna svo að þetta er bara the real deal hugsa ég.
Við verðum ekki í símasambandi næsta sólahringinn eða svo, ætlum bara að einbeita okkur að þessu. Svo hringjum við um leið og færi gefst með fréttir.
kveðja,
Eva


7 Comments:
Elskurnar, mínar allra bestu óskir um vel heppnaða fæðingu. Megi allt ganga eins og best er á kosið!
Ég hugsa til ykkar!
Látið vita eins fljótt og hæsgt er, ég er strax að deyja úr spenningi!
Held og lykke!
Sigrún!!!
víííííí, við erum geðveikt spennt og bíðum eftir fréttum. Gangi ykkur vel, ástarkveðjur Kolbrún og Bjössi
Elsku Eva og Steini
Gangi ykkur sem allra best í dag, elskurnar mínar. Ég vona að allt gangi vel og að barnið láti nú ekki bíða of lengi eftir sér. Gangi ykkur og vel og til hamingju, hlakka til að heyra í ykkur.....bíð spennt við símann
knús
ykkar Lóa
elsku eva
eg er svo anaegd fyrir tina hond. bid spennt eftir frettum
eg hringi i stelpurnar til ad fa frettir og svo i tig eftir nokkra daga tegar tu ert buin ad hvilast
astarkvedjur gudny
er med ter i anda
Elsku Eva og Steintor, innilega til hamingju. eg sa myndina fra Lou og hun er guddomlega falleg! Astarkvedjur og vid sjaumst eftir 3 vikur rumlega. Hlakka til ad hitta ykkur oll
knus Gudny
Til hamingju með litlu prinsessuna:) Hún er ekkert smá sæt á myndinni, bara algjört æði!! Hlakka mikið til að sjá hana (og náttúrlega ykkur líka;))í desember.
Knús frá Danmörku,
Kristbjörg og Gulli.
Hæ, til hamingju!!! Ég veit að góðir hlutir gerast hægt, mjööög hægt, eftir að lítil rúsína er komin í heiminn en endilega setja inn myndir ASAP :) *bíð spennt á refresh takkanum*
Gréta.
Sendu inn athugasemd
<< Home