fimmtudagur, október 20, 2005

37 vikur og 3 dagar and counting....

Ég kíkti inn á doktor.is og skoðaði statístíkina:

Líkamsfitan heldur áfram að þróast.
Sethæðin er nú um 35 sm og þyngdin í flestum tilfellum yfir 3,3 kg.
Hin dúnkenndu hár, sem hafa þakið líkama barnsins mikinn hluta meðgöngutímans hverfa nú.
Hrukkur húðarinnar eru nú horfnar.
Barnið byrjar nú að koma sér fyrir í fæðingarstellingar.
Flest börn eru með höfuðið niður. Um það bil 3-4 % fæðast þó í setstellingu með rófubeinið/fæturna á undan.
Aðeins fæðast að meðaltali 1 af hverjum 7 börnum neð keisaraskurði.

Jamm, rúmlega 13 merkur, það er jafnmikið og ég vóg þegar ég fæddist. Vona að ég gangi ekki framyfir, því það bætist víst 1 mörk á viku við þyngd barnsins á síðustu vikunum. Þetta verður líklega 15-16 marka barn, án þess að ég viti neitt um það, vona bara að það verði ekki mikið stærra :)

Þessi vika er búin að fljúga áfram, og ég hélt að ég myndi bara sitja og bíða í fæðingarorlofinu. Ég fer auðvitað 6 sinnum í viku í leikfimi þannig að það er alltaf ákveðið markmið á hverjum degi. En ég komst að því um daginn að ef ég ætla að komast í jóga þá er eins gott að vera bara stillt fyrr um daginn og vera ekkert að vaska upp og taka til, því ég var gjörsamlega að drepast í grindinni eftir að hafa verið að drepast úr myndarskap heima.

Þá er bara að setja tærnar upp í loft og vera stillt :)

kveðja,
Eva

þú ert gestur númer