þriðjudagur, september 13, 2005

Sykurgrís

Við fórum til ljósunnar í síðustu viku. Allt kom vel út, legbotninn alveg á réttri leið og hjartslátturinn hjá barninu var til fyrirmyndar. Blóðþrýstingurinn hjá mér var reyndar ennþá frekar hár svo að það þarf að fylgjast með því. Ég tók svo þetta týpíska þvagpróf sem þarf alltaf að taka. En svo "skemmtilega" vildi til að það mældust tveir plúsar af sykri og ég var því send í sykurþolspróf upp á spítala í gærmorgun. Það er víst bara til öryggis og er gert mjög oft ef það mælist sykur í þvaginu. En þetta próf er ekkert grín. Í fyrsta lagi þurfti ég að vakna eldsnemma til að vera mætt kl.8 uppeftir og mátti ekki vera búin að borða morgunmat. Svo var stungið í puttann til að mæla eitthvað. Síðan er tekin alvöru blóðprufa og ég látin drekka 1/2 lítra af sykurvatni. Það er skemmst frá því að segja að öll mín sykurþörf hvarf með öllu og hefur ekki komið aftur... ennþá. Ógeðslegt að drekka svona mikið af sykri :(

Jæja, svo er ég látin bíða í klukkutíma. Það var nú ekki svo slæmt því ég fékk lazy-boy stól tíl að sitja í og glás af tímaritum og svo hafði ég líka tekið með mér bók svo að mér leiddist ekkert óskaplega. En eftir þenna klukkutíma var tekin önnur blóðprufa og ég svo látin bíða í annan klukkutíma. Þá var tekin þriðja blóðprufan, og handleggurinn á mér var orðin dáldið götóttur og aumur. En svo var þetta búið, tók 2 og hálfan tíma. Svo er bara að bíða eftir niðurstöðunni. Fæ að vita meira á fimmtudaginn.

Þangað til þá...

Eva

1 Comments:

At 17 september, 2005 16:18, Blogger G-Doc said...

hae hae
hverning for med blodsykurinn og trystinginn? er allt i lagi?
gudny

 

Sendu inn athugasemd

<< Home

þú ert gestur númer