Meira hrós :D
Jiii, núna er ég alveg í skýjunum. Ljósan var svo ánægð með mig í gær í skoðuninni, blóðþrýstingurinn er að lækka og þyngdaraukningin að minnka :) :) :) Hún hafði svosem engar svakalega áhyggjur af blóðþrýstingnum (eða "loft"þrýstingnum eins og ég kallaði þetta óvart um daginn, hehe) en neðri mörkin voru komin upp í 85 í þarsíðustu og síðustu skoðun. Núna var hann í 80 og var hún miklu ánægðari með þá tölu. Efri mörkin voru einhverstaðar á bilinu 140-145 sem er fínt bara held ég, allavega miðað við ólétta konu því blóðþrýstingurinn hækkar alltaf eitthvað á meðgöngu. A.m.k. er frekar fylgst meira með neðri mörkunum. Enginn sykur mældist og greinilegt að þær varúðarráðstafanir sem ég gerði síðastliðnar tvær vikur, að minnka sykur og salt í matnum, hafa virkað. Tilbúinn matur og pakkamatur er oft mjög saltríkur, þannig að hún ráðlagði okkur að kaupa óunnin mat og krydda hann sjálf. Svo hef ég líka reynt að forðast pakkamat og minnkað ost.Fyndið, síðustu ár hef ég virkilega sökkt mér ofan í vítamín og bætiefni og gert mér far um að vita hversu mikinn sykur má borða og hversu mikið prótein er best að hafa í fæðunni svo hún sé rétt samansett, en aldrei pælt í hversu mikið salt er best að hafa. En til að vera nú fræðileg, þá er viðmiðun Manneldisráðs hámark 8 gr. af salti á dag eða 3,2 gr. af natríum (sem er í salti). Sjá grein á netinu.
Og þegar maður kíkir aftan á pakkasúpur og instant piparsveinapasta þá er ansi mikið salt í því. Pulsur og unnin kjötvara er líka frekar sölt.
Svo er enn ein frétt... dadarrada! Barnið var búið að skorða sig í gær, þannig að það virðist vera byrjað að undirbúa sig fyrir fæðinguna. Ljósan sagðist þó ekki lofa því að höfuðið myndi ekki skoppa upp úr grindinni aftur því það er ennþá nóg pláss til að snúa sér, en allaveganna passar hausinn þar núna. Það hlýtur að vera góðs viti :) Það skýrir þrýstinginn sem ég fann alltí einu neðst í bumbunni. Ekkert sem ég kippti mér upp við, því maður upplifir allskonar stingi og óþægindi þegar bumban stækkar, en samt gaman að vita hvernig það snýr. Það væri gaman að geta séð barnið í sónar eða einhverju öðru þegar maður vill, hvernig það snýr og hvort það er að sparka með höndum eða fótum. Þegar ég ligg útaf þá treður það stundum höndunum, eða fótunum, bak við rifbeinin og kitlar mig. Það er hrikalega fyndið að finna svona greinilega fyrir litlum tásum eða puttum.
Já nú fer þetta að styttast, tæpar 7 vikur eftir. Mér finnst tíminn fljúga áfram, ég á eftir að vera í vinnunni í rúmar 3 vikur og svo er ég komin í frí. Þá eru ekki nema 3 vikur í settan dag og þá byrjar ballið ;)
Segjum það í bili,
Eva


0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home